fimmtudagur, janúar 12, 2006

Bankirai

Ákvað að blogga núna bara til að kvarta yfir því hvað það er skítt að vinna úti núna!!!! Þetta er ekki vetrarvinna sem ég vinn! Ég skal sko segja ykkur það. Eins og mér finnst gaman að smíða og allt það þá bara er einfaldlega ekkert sólskin við það að smíða Sólpall í janúar :) Já það kom sól í dag í svona 5 mínútur og það var ekki laust við það að léttist í manni lundin í heilar 6 mínútur :) Fór frekar pirraður í vinnuna í morgun, vaknaði og vonaðist til þess að þurfa ekki að fara út í rokið og slydduna, but nooooo! Ef bara maður fengið ekki borgað fyrir að vinna þá myndi ég hætta!! ;) ( ef einhver er með uppástungu að annarri vinnu sem er betri þá má sá hinn sami bara tala við mig og segja frá)
En nóg um það, platan er að verða til, fer í masteringu á þriðjudaginn næsta, ég er búinn að mixa og ótrúlegt en satt þá er ég bara furðulega ánægður :) Ég vissi að ég gæti þetta :) Strákarnir eru líka sáttir að mér skilst, sem er líka plús :P

Ekki meira í bili

kveðs
Biggs

hlustun: Turn out the light / The Music - The Music. (Hann segir eiginlega bara baby baby, samt fínt lag, hef eiginlega aldrei fílað sönginn hjá gaurnum!)
Bankirai

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

The guy in the 4000$ suit will hold the elevator!!

Jæja ég er fluttur, kominn í Kópavoginn!
Maður fer að verða búinn að koma sér fyrir, mjög sáttur með allt nema eitt!!
Sturtan!! hún er ekki að gera sig, maður var náttulega orðinn vanur sturtunni í Hvassó og svo kemur maður hingað og þetta er svona sturta í baðkari, tssss þetta er eins og að fara úr Benz í ......(einhver lítinn bíl)!!! það er skelfilegt maður. Allt hitt í fínu :)
Vó næstum kominn mánuður síðan ég djammaði síðast (þetta kærustustand er að taka aðeins of mikinn tíma ;) (þetta er brandari til að fyrirbyggja allan misskilning og leiðindi) ), hmm fer ekki verða kominn tími á djamm, þaheldénú! Og by the way það er kominn diskókúla á Kofann segið svo að Kofinn sé ekki kúl!!!! I mean kommon people!! ( <- AD quote)

bæbb
Biggle
The guy in the 4000$ suit will hold the elevator!!

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Toyrolla 95% gleði

Jæja

Nú er ég hamingjusamur tjaldari!!!
Kominn á nýjann bíl, eðalhnakki!!!!
Nú keyrir Biggi um á 2002 Toyrollu (Toyota Corolla)!! Úber gleði!!!!
Flyt um helgina, mikil gleði með það!!!
Mánuður til jóla!! Gleði
Hlusta á Hunting for Happiness með Dikta!!! Mikil gleði, mjög flott plata!!!
Tryggingagjöld!! Mikil óánægja!!!!!

Ánægjustuðull = 0,90 => 90%

LeStupido
Toyrolla 95% gleði

þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Maryland Mixalot

Jæja
nú var loksins djammað um helgina og þetta líka fínasta djamm bara, með tilheyrandi timburmönnum, það er rosalegt að djamma með Inga maður fær bara ekki frið til að klára drykkina einu sinni þá er maður kominn með einhvern annan drykk!!! En þetta djamm fór að mestu leyti fram fyrir utan Kofann, sem er bara alveg að verða klassískt, þ.e. Ég, Ingi og rafmagnskassinn góði!!! :) Ekki nóg með það þá hélt tilraunastarfsemin áfram í drykkjum og að þessu sinni vorum við að drekka Maryland Mixalot sem er nefnt eftir Maryland kókoskexinu, en við Ingi skýrðum hann það eftir að okkur var bent á það af góðri manneskju að þetta væri á lyktina eins og Maryland kex!!! Eftir djammið lá svo leiðin á Quiznos, ég borðaði heilan bát og gleymdi að kaupa mér að drekka og bölvaði ég sjálfum mér mikið fyrir að hafa ekki keypt neitt að drekka, en ég borðaði bátinn á leiðinni upp laugarveginn, minnir mig :S Svo er allt að verða brjál í nýja húsinu, já ég er að flytja fyrir þá sem vita ekki, " hann kemur frá kóhópavogji" já ég er flytja í Kópavoginn!! Fokk hvað ég nenni ekki að skrifa meir!!

Kúkur og piss

B
Maryland Mixalot

fimmtudagur, október 13, 2005

Chicken at Crossroads!!!

Jæja Ókind spilar á Iceland Airwaves föstudaginn 21. okt kl 20.45 á Grand Rokk!!!! Mæli með því að fólk mæti og sjái hljómsveitirnar Ég og Brúðabandið sem spila á undan og eftir(í þessari röð, Ókind er í miðjunni!!) Annars er mest lítið í gangi þessa dagana búinn að vera með geðveikt kvef síðan á mánudag, held það sé eftir Októberfest Háskólans en ég hef ALDREI verið jafn timbraður og á laugardaginn síðasta!!!!!! Hættur að drekka í bili!!

p.s. mæli með kjúklingastrimlum á Vegamótum

Túddúls

B
Chicken at Crossroads!!!

laugardagur, október 01, 2005

What the f%&k!!!!!!

INGI what the fuck!!!!

1. Ég er með huge ass fæðingarblett á rassinum((ass-rassinum tenging!!ég er ekki með huge ass!!)nei hann er ekki svona útstæður og nei þið megið ekki koma við, og ég held að það vaxi örugglega ekki hár á honum!!))
2. Ég var einu sinni með sundfit milli baugfingurs og langafingurs á vinstri hönd(þangað til í 9ára bekk synti ég alltaf endalaust í réttsælishringi) Svo var það tekið þegar ég var 9 ára!!
3. Ég klæði mig alltaf fyrst í sokkana(nei, djók)
4. Bræður mínir eru báðir með konum(annar giftur, hinn trúlofaður) sem heita Katrín og besta vinkona mín heitir Katrín( og já ég er búinn að heyra ALLA brandara sem eru til um þetta mál!!!!!!!!!!!!! punktur búið!!!)
5. Ég og langalangamma mín áttum sama afmælisdag 21 júní og það voru akkúrat 100 ár milli okkar.

svo segi ég stopp á þetta klukk kjaftæði!!!!
kær kveðja
B
What the f%&k!!!!!!

miðvikudagur, september 28, 2005

FACE!!!!!!

Vó hvað ég hef ekki póstað lengi, hmmm já fyrst á dagskrá Ókind spilar á Grand Rokk föstudaginn 21 október á Iceland Airwaves,allir að mæta!!! Byrjaður í FÍH semsagt orðinn löglegur FÍH faggi ,jessssssss!!! Doldið svekktur yfir því hvað eru fáar stelpur, ekki gott.(í FÍH þ.e.) Ég er á svona tímabili sem allir fara á, þ.e. svona Radiohead tímabil, nema það að ég er búinn að vera á því í svona ár!! Svo er að koma vetur, ég er ekki vetrarkall, ég þarf líka að vinna úti,blah nenni ekki að skrifa meir

Biggi
FACE!!!!!!